Skip to content

Fljúgandi teppi á Bergi

By Mantaute Navicke | 15. mars, 2023 | Slökkt á athugasemdum við Fljúgandi teppi á Bergi

  Menningarmótsverkefnið, sem er líka þekkt undir nafninu “Fljúgandi teppi”, er aðferð hugsuð til þess að varpa ljósi á styrkleika, fjölbreytta menningarheima og áhugasvið barnanna. Teppi kemur fljúgangi á morgnana með bréf frá löndum barnanna (löndin okkar eru Polland, Litháen , Moldavia, Ukraina, Finnland, Thailand, Færeyjar, Filipseyjar, Ungverjaland, Island ) í bréfinu eru upplysingar um…

Konudaginn á Bergi

By Mantaute Navicke | 24. febrúar, 2023 | Slökkt á athugasemdum við Konudaginn á Bergi

Á mánudaginn 20 febrúar héldum við Konudaginn hátíðlegan hér á Bergi. Margar mömmur og ömmur komu til okkar, fengu kaffi og allskonar meðlæti. Þær voru svo leystar út með gjöfum en börnin voru búin að gera blóm í tilefni dagsins. Takk fyrir komuna það var svo gaman að fá ykkur í heimsókn.

Öskudaginn í leikskólann

By Mantaute Navicke | 24. febrúar, 2023 | Slökkt á athugasemdum við Öskudaginn í leikskólann

Á Öskudaginn mættu svo margar furðuverur í leikskólann. Við slógum köttinn úr tunnunni en það var svo enginn köttur þar (sem betur fer) bara rúsínur sem furðuverurnar gæddur sér á. Svo var dansað og sungið og allir skemmtu sér konunglega.

Lestarátakinu okkar lokið í bili

By Mantaute Navicke | 14. febrúar, 2023 | Slökkt á athugasemdum við Lestarátakinu okkar lokið í bili

Lestarátakinu okkar lokið í bili . Það hefur gengið frábærlega og dropunum rignir niður hjá okkur 🙂    

Gjöf til leikskólans Berg frá Kvenfélaginu í Kjósarhreppi

By Mantaute Navicke | 8. febrúar, 2023 | Slökkt á athugasemdum við Gjöf til leikskólans Berg frá Kvenfélaginu í Kjósarhreppi

Við vorum svo heppin hér á Bergi að Kvenfélagið í Kjósinni færði okkur veglega gjöf 🙂 Þetta eru kubbar frá Krumma sem nýtast sérstaklega vel fyrir yngstu börnin. Kubbarnir bjóða uppá ýmsa möguleika sem styrkir líkamlegan þroska þeirra og ýtir undir sköpunargáfu barnanna. Við þökkum af öllu hjarta fyrir þessa veglegu gjöf.

Bóndagur – pabbadagur á Bergi

By Ásta | 24. janúar, 2023 | Slökkt á athugasemdum við Bóndagur – pabbadagur á Bergi

 

Stafrænt uppeldi – Foreldrafræðsla

By Ásta | 4. janúar, 2023 | Slökkt á athugasemdum við Stafrænt uppeldi – Foreldrafræðsla

Jólakveðja

By Ásta | 19. desember, 2022 | Slökkt á athugasemdum við Jólakveðja

Leikskólinn Berg verður opinn út Þorláksmessu, en fyrir þau börn sem hafa verið skráð er opið milli jóla og nýárs (þau börn sem eru skráð í fríi 27.-30. desember fá niðurfellingu leikskólagjalda þann tíma), en lokað verður á aðfangadag og fram yfir annan í jólum. Leikskólinn starfar svo óbreytt frá 2. janúar á nýju ári.…

Skólasöngur Klébergs

By Ásta | 11. nóvember, 2022 | Slökkt á athugasemdum við Skólasöngur Klébergs
Börn úr Klébergsskóla að syngja skólasöng Klébergs

Nýi skólasöngur Klébergs er nú kominn á vefinn. Hægt að nálgast hann hér.

Fræðslufundur um kvíða barna

By Ásta | 10. október, 2022 | Slökkt á athugasemdum við Fræðslufundur um kvíða barna