Skip to content
2019-06-íþróttadagur (35)

Kátakot

Opnunartími

Mánudaga-fimmtudaga kl. 14:25-17:00

Föstudaga kl. 11:55-17:00

Þegar skertir dagar eru í skólanum koma börnin þegar skóla lýkur (tímasetning auglýst hverju sinni).

Á viðtalsdögum og þegar jóla- og páskafrí eru þarf að skrá viðveru barna sérstaklega fyrir tilsettan tíma.

Þegar starfsdagar eru í skólanum er opið í Kátakoti, nema þrjá starfsdaga á skólatíma, og er reynt að hafa þá sameiginlega starfsdögum skóla. Lokað er í frístund á degi skólasetningar og skólaslita.

Ávallt er greitt aukalega fyrir fyrri partana, séu börn skráð þá þegar á þeim vikudögum.

Þegar vetrarfrí er í skólanum, er lokað í Kátakoti.