Gjaldskrá
Þjónusta | Mánaðarverð | Síðdegishressing | Samtals |
---|---|---|---|
Vistun 5 daga | 13.413 kr. | 3.872 kr. | 17.285 kr. |
Vistun 4 daga | 10.937 kr. | 3.101 kr. | 14.038 kr. |
Vistun 3 daga | 8.442 kr. | 2.321 kr. | 10.763 kr. |
Vistun 2 daga | 5.956 kr. | 1.561 kr. | 7.517 kr. |
Vistun 1 dag | 3.461 kr. | 791 kr. | 4.252 kr. |
Lengd viðvera | - - - | - - - | 2.013 kr. |
Ef þjónusta er nýtt kl. 8.00-13.25 á foreldradögum og starfsdögum skóla eða í jóla- og páskafríum þarf að greiða fyrir það kr. 2.013 á dag og er þá talað um lengda viðveru. Á ofangreindum dögum geta börnin eftir sem áður dvalið á frístundaheimilinu frá kl. 13.25-17.00. Óskað er eftir skráningu þessa daga. Einnig er hægt að skrá þau börn eftir hádegi sem ekki eru skráð í vistun þann vikudag og greitt sérstaklega fyrir. Hægt er að breyta skráningu á lengda viðveru fram að þeim tíma sem umsóknarfrestur rennur út, eftir það er skráning bindandi og ekki er veittur systkinaafsláttur af viðbótarvistun þessa daga.
Ef skóladagurinn er skertur og lýkur á hádegi, er ekki talað um lengda viðveru, þá hefst vistunin eins og á föstudögum kl. 11:55.