Skip to content
334e4b906f73420c89d042a5697d0ba5

Leikskólinn Berg

Um Berg

Leikskólinn Berg er staðsettur rétt neðan við Kléberg á Kjalarnesi.

Hann er lítill og heimilislegur þar sem meðal annars er stutt í fjöruna, mikil fjallasýn og fjölskrúðugt fuglalíf. Í samræmi við það er lögð áhersla á umhverfismennt og útinám, ásamt auðugu málumhverfi. Út frá staðsetningu og upplifun á umhverfinu leggjum við áherslu á að endurspegla kyrrðina og notalegheitin sem eru allt í kring. Við viljum hafa rólegt og heimilislegt andrúmsloft, þannig að öllum finnist notalegt að koma til okkar, hvort sem er í lengri eða skemmri tíma.

Á Bergi er stór hópur af ungum vísindamönnum á aldrinum eins til sex ára. Helstu einkenni hópsins eru lífsgleði, forvitni og áhugi. Við erum einnig með glæsilegan starfsmannahóp sem heldur vel utan um allan leikskólann. Við erum mjög stolt af starfinu okkar, öllum leikskólanum og því umhverfi sem við erum í.
Leiðarljósin okkar eru; leikur – samvinna – virðing, þau eiga að einkenna allt okkar starf.

Á Bergi eru tvær deildir sem heita Dvergasteinn (1-3 ára) og Álfasteinn (3-6 ára).

Leikskólinn Berg:

    • Kollagrund 6, 116 Reykjavík
    • Sími: 4117171
    • Netfang: berg@rvkskolar.is
    • Opnunartími 7:30-17:00 (fyrr ef öll börn hafa verið sótt)

Sigrún Anna Ólafsdóttir leikskólastjóri

gsm: 6648271

Netfang: sigrun.anna.olafsdottir@rvkskolar.is

Kristín Sigríður Evertsdóttir aðstoðarleikskólastjóri/sérkennslustjóri

gsm: 6648275

kristin.sigridur.evertsdottir@rvkskolar.is

SÉRSTAÐA SKÓLANS

Kennarar í unglingadeild, undir forystu Páls Ásgeirs Torfasonar, fengu í gær hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur. Verðlaunin voru veitt fyrir verkefnið Framtíðarfell sem hefur það meðal annars að markmiði að innleiða nýja og fjölbreytta kennsluhætt