Fræðslufundur – Samvinna barnanna vegna

Mánudaginn 27. mars kl. 19:45-21:00 verður fræðslufundur fyrir foreldra og forsjáraðila með Heimili og skóla. Fundurinn er haldinn í Hlöðunni í Gufunesbæ.
Staðsetning: https://goo.gl/maps/ZYeBUKfFJFN8a61f7
Við vitum að mikilvægi samvinnu foreldra í skólastarfinu er óumdeilt. Samheldni og samstarf foreldra hefur jákvæð áhrif á velferð barna; skólabrag og líðan nemenda, foreldra og kennara, svo ekki sé minnst á árangur í leik og námi. En hvernig get ég sem foreldri lagt mitt að mörkum til að auka vellíðan og farsæld barna í mínu nærumhverfi og skiptir samvinna foreldra máli þegar kemur að farsæld barnanna okkar?
Við hvetjum öll til að mæta á fundinn.
Mikilvægt er að skrá sig ef horfa á í streymi: https://forms.gle/45oMohorgwKD4NpL6