Skip to content

36 félagsmiðstöðvar kepptu í STÍL

Um helgina var Stíll, hin árlega hönnunarkeppni Samfés á milli félagsmiðstöðva, þar sem keppt er í hárgreiðslu, förðun og fatahönnun út frá ákveðnu þema sem er ákveðið af ungmennaráði Samfés en þemað í ár var ,,Gylltur glamúr“. Keppnin hefur oftast farið fram í nóvember ár hvert, en frestaðist þetta skólaárið fram til janúar. Okkar fólk á Stíl voru þau Erica-Antonia Dedu, Matthildur Sóley Eggertsdóttir, Nói Quinten Verwijnen og Sigrún Rúnarsdóttir,

Markmið Stíls er að hvetja unglinga til listsköpunar og um leið gefa þeim aukin tækifæri til frumlegrar hugsunar og virkja sköpunarhæfileikana. Keppnin vekur jákvæða athygli á því hvað unglingar eru að gera á sviði sköpunar, gefur þeim kost á að koma hugmyndum sínum á framfæri og sýna afrakstur margra mánaða undirbúningsvinnu hópsins.  Klébergsskóli býður upp á Stíls valáfanga fyrir nemendur, þar sem þeim býðst að vinna saman að hönnun sinni á skólatíma í samstarfi við félagsmiðstöðinni, líkt og tíðkast víða um landið.

Fyrirkomulag keppninnar er með þeim hætti að hóparnir, skipaðir 2-4 unglingum fá tvær klukkustundir til þess að undirbúa módelið sitt fyrir sýninguna. Hóparnir skila einnig hönnunarmöppu, sem útskýrir hugmyndina á bak við hönnunina, með teikningum, efnisprufum, kostnaðarupplýsingum og ljósmyndum af flík, hári og förðun.

Krakkarnir okkar frá Flógyn stóðu sig með prýði og leyfum við myndunum að tala sínu máli.