Komandi viðburðir


Engir viðburðir eru skráðir á næstunni.
Skoða dagatalið
September 2010 Október 2010
Su Þr Mi Fi La
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30
Klébergsskóli
Frá 10. bekk Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
miðvikudagur, 08 september 2010 09:52

Góðir íbúar Grundarhverfis, Kjósarhrepps og nágrennis.
Nú er lokið fyrsta áfanga okkar í söfnun fyrir útskriftarferð okkar vorið 2011. Við þökkum ykkur kærlega fyrir frábærar móttökur og vinalegt viðmót í okkar garð.
Okkar bestu þakkir.
Nemendur í 10. bekk :)
 

Smellið á til að stækka!
Smellið á myndirnar til að stækka.

 
Skólafærninámskeið fyrir foreldra í 1. bekk Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 02 september 2010 11:21

Miðvikudaginn 8. september verður haldið námskeið fyrir foreldra nemenda í 1. bekk Klébergsskóla.

Smellið á myndina til að stækka 
Mynd: Elísabet M. Smellið til að stækka.

Námskeiðið verður haldið í sal skólans, það hefst kl. 18 og lýkur kl. 20. Um miðbik námskeiðsins verður boðið uppá súpu og brauð. Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta.

Lesa meira...
 
Námskynningar Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
mánudagur, 30 ágúst 2010 11:43

Í þessari viku verða fundir með foreldrum þar sem starfið í vetur verður kynnt, bekkjarfulltrúar valdir í hverjum bekk o.fl. Þetta er líka kjörinn vettvangur fyrir foreldra að ræða sameiginleg málefni, s.s. samstöðu um útivistartíma, foreldrarölt, forvarnir og fleiri mál. Á meðan foreldrar funda í salnum mæta nemendur í tíma skv. stundaskrá, nema 8.-10. bekkur sem situr kynningarfundinn með foreldrum.

Kynningarfundirnir verða dagana 1.-3. september og eru allir á sama tíma: kl. 8:15-9:15. Foreldrar mæta í sal skólans.

Lesa meira...
 
Gönguferð á föstudagsmorgni Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
föstudagur, 27 ágúst 2010 11:19

Allir nemendur skólans fóru í stutta gönguferð í morgun og gengu sem leið lá í gegnum nýju undirgöngin og þaðan eftir malarveginum í átt að Sjávarhólum. Lengra var ekki farið að sinni og sneri hersingin við og hélt til baka í skólann. Þessi ganga var liður í því að brydda uppá öðru vísi föstudagsskemmtunum eins og gert var sl. vor. Við nýtum góða veðrið þessa fyrstu daga og vikur skólaársins eins mikið til útiveru og hægt er og ætlum að fara í leiki, íþróttir og ýmislegt af því tagi þennan fyrsta tíma á föstudagsmorgnum sem merktur er "föstudagsskemmtun". Þegar líða tekur á haustið taka svo við skemmtanir á sal, s.s. leikrit, söngur og dans.

 
Skólinn er svo skemmtilegur „að ég vildi að ég ætti heima hérna“ Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
þriðjudagur, 24 ágúst 2010 20:47

Fyrsti skóladagurinn á þessu hausti fór vel af stað og voru nemendur ánægðir að mæta aftur í skólann og nýnemar stóðu sig vel. Einn nemandi lýsti skólanum svona „það er svo gaman í skólanum að ég vildi að ég ætti heima hérna“

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 32