| Klébergsskóla slitið í 81. sinn |
|
|
|
| mánudagur, 21 júní 2010 12:34 |
|
Klébergsskóla var slitið í 81. sinn 10. júní sl. Það þýðir að skólinn er elsti starfandi grunnskóli í Reykjavík. Skólaslit og útskrift 10. bekkjar fóru fram við hátíðlega athöfn í sal skólans, að viðstöddum öllum nemendum og starfsmönnum skólans auk foreldra og forráðamanna. Snorri Hauksson aðstoðarskólastjóri var kynnir. Kór skólans söng fjögur lög undir stjórn Ásrúnar Ingu Kondrup og Stefán Valgeir Guðjónsson lék lag á rafmagnsgítar. Þá flutti skólastjóri ávarp þar sem farið var yfir skólastarfið á skólaárinu 2009-2010. Greint var frá því að tveir kennarar hefðu hætt störfum við skólann, þær Andrína G. Jónsdóttir og Iðunn Ólafsdóttir. Voru þeim báðum þökkuð störf þeirra fyrir skólann. Þá var sagt frá því að Stefanía Bonnie Lúðvíksdóttir færi í árs leyfi frá skólanum á næsta skólaári. Þá minntist skólastjóri tveggja manna sem létust á árinu en höfðu hvor um sig mikið komið við sögu skólans, þeirra Ólafs Kr. Magnússonar skólastjóra Klébergsskóla 1945-1979 og Þorsteins Broddasonar, kennara.
Að loknu ávarpi skólastjóra var komið að útskrift 10. bekkjar. 19 nemendur útskrifuðust frá skólanum að þessu sinni. Þau eru: Aron Gunnar Jónsson Því miður gátu ekki allir útskriftarnemendurnir verið viðstaddir athöfnina. Eftirtaldir nemendur fengu sérstaka viðurkenningu fyrir góðan árangur í námi: Fríða Theodórsdóttir fyrir góðan námsárangur í tungumálum og íslensku, María Pálsdóttir fyrir góða háttvísi og iðni í náminu, Nökkvi Fjalar Orrason fyrir góðan árangur og ástundun í íþróttum auk þess að hljóta Nemendaverðlaun Menntaráðs, Íris Björk Snorradóttir fyrir framfarir í námi, Jóna Dóra Hólmarsdóttir fyrir góðan árangur í textílmennt og Margrét Silfa Schmidt Reynisdóttir fyrir góðan námsárangur í stærðfræði. Eftir útskriftina fluttu tveir nemendur ávarp. Það voru þau Nökkvi Fjalar Orrason og Jóna Dóra Hólmarsdóttir sem gerðu það. Mæltist þeim báðum afar vel og hrifu salinn með sér. Þá þakkaði skólastjóri Báru Birgisdóttur umsjónarkennara fyrir að hafa stutt nemendur og styrkt í náminu og beindi loks orðum sínum til útskriftarnemenda, þakkaði þeim fyrir góð kynni og samstarf í gegnum tíðina og óskaði þeim velfarnaðar í námi og starfi. Starfsmenn skólans stigu því næst á stokk og sungu hinn sígilda texta Sigþórs Magnússonar, fyrrverandi skólastjóra Klébergsskóla, "Nemandi minn". Að þessu loknu sleit skólastjóri Klébergsskóla og 81. skólaári skólans því lokið. Nemendur í 1.-9. bekk fengu þá vitnisburð sinn frá umsjónarkennurum en 10. bekkingar, foreldrar og forráðamenn og starfsmenn skólans áttu góða samverustund þar sem Bára umsjónarkennari sagði frá árum sínum með bekknum en hún hefur kennt þeim mest allan tímann, með hléum. Nemendur fluttu ávörp, þökkuðu kennurum og öðrum starfsmönnum fyrir samveruna og afhentu þeim rósir í kveðjuskyni. Þá gaf árgangurinn skólanum innrammaða, stækkaða ljósmynd af öllum nemendum og starfsmönnum skólans. Mun þessi mynd sóma sér vel á áberandi stað innan skólans. Myndir frá skólaslitunum eru nú komnar á vefinn undir liðnum "Myndasafn". |



.jpg)