Ályktun skólaráðs Klébergsskóla Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
mánudagur, 14 júní 2010 21:35

Skólaráð Klébergsskóla samþykkti í apríl sl. svohljóðandi ályktun:

Ályktun Skólaráðs Klébergsskóla
 
Í upphafi yfirstandandi skólaárs voru boðaðar hagræðingaraðgerðir í grunnskólum borgarinnar. Viðbótarstundir í yngri bekkjum voru teknar af, stundum til forfallakennslu var fækkað, stórlega var dregið úr endurnýjun búnaðar og framkvæmdir skornar niður svo dæmi séu nefnd.
Fyrir þennan niðurskurð bjó Klébergsskóli við töluverðan aðstöðumun vegna staðsetningar sinnar miðað við aðra grunnskóla í Reykjavík. Þetta hefur gert það að verkum að nemendum skólans býðst ekki að fara í vettvangsferðir í sama mæli og jafnaldrar þeirra í öðrum skólum borgarinnar, ástæðan er einfaldlega kostnaður við ferðir. Undanfarin ár hafa stjórnendur skólans ítrekað reynt að fá þetta leiðrétt án árangurs. Þjónusta Strætó kemur hér lítt að gagni vegna lítillar ferðatíðni til og frá Kjalarnesi.

 
Þrátt fyrir þetta hefur skólastarf gengið áfallalítið. Þetta ber að þakka einlægum vilja starfsfólks skólans og góðum samstarfsvilja foreldra. Þó svo foreldrar hafi hingað til getað hjálpað til við akstur í vettvangsferðir þá hafa aðstæður hjá mörgum foreldrum versnað mikið sökum dýrtíðar og slæms ástands í atvinnumálum.
 
Nauðsynleg endurnýjun á tækjabúnaði þarf að vera til staðar, endurmenntun starfsfólks má ekki staðna og námsferðir nemenda mega ekki stöðvast.
 
Skólaráð Klébergsskóla varar eindregið við frekari niðurskurði í grunnskólum borgarinnar. Það er álit skólaráðsins að niðurskurður muni að lokum bitna á starfi skólanna og óhjákvæmilega koma niður á menntun barnanna.
 
Við teljum að við ríkjandi aðstæður í þjóðfélaginu sé nauðsynlegt að allir taki á sig auknar byrðar sem vonandi verður til skamms tíma. Skerðing á menntun er hins vegar tjón sem bitnar fyrst og fremst á ungu fólki, þeim sem þurfa að leysa þau vandamál sem fullorðið fólk hefur skapað.
Skólaráð Klébergsskóla fer eindregið fram á það við fræðsluyfirvöld að grunnskólum verði hlíft við frekari niðurskurði.
 
Reykjavík 28. apríl 2010
 
Björgvin Þór Þórhallsson, skólastjóri,
Guðrún Ólafsdóttir, fulltrúi kennara,
Katrín Cýrusdóttir, fulltrúi kennara,    
Ásta Hjálmarsdóttir, fulltrúi annars starfsfólks,
Andrea Magdalena Jónsdóttir, fulltrúi foreldra,
Anna María Þórðardóttir, fulltrúi foreldra,
Anna Lyck Filbert, fulltrúi foreldra/grenndarsamfélags,
Berglind Magnúsdóttir, fulltrúi nemenda,
Brynhildur Ásgeirsdóttir, fulltrúi nemenda.
 
Ályktunin hefur nú verið send Menntaráði Reykjavíkur.