|
Nemendaverðlaun Menntaráðs |
|
|
|
|
mánudagur, 07 júní 2010 22:02 |
|

Nökkvi Fjalar Orrason, 10. bekk, hlaut á dögunum nemendaverðlaun Menntaráðs Reykjavíkur. Voru verðlaunin afhent við hátíðlega athöfn í Rimaskóla sl. sunnudag. Nökkvi var þar í góðum félagsskap en alls fengu 36 nemendur nemendaverðlaun fyrir að skara fram úr á ýmsum sviðum í sínum skólum. Nemendurnir voru á ýmsum aldri, allt frá 4. bekk og uppí 10. bekk.
Fyrir tveimur árum fékk Ívar Orri Kristinsson, nú í 4. bekk, þessi verðlaun. Í fyrra var það Paulina Piatek, þá í 3. bekk og í ár var það Nökkvi, eins og fyrr segir.
Í rökstuðningi með útnefningunni segir:
Nökkvi fær þessi verðlaun fyrir að vera góður og vel skipulagður námsmaður sem einnig er jákvæður félagslegur leiðtogi bæði innan skóla og utan.
Nökkvi hefur alla sína skólagöngu stundað nám sitt af áhuga og skyldurækni. Hann setur sér vel skilgreind og raunsæ markmið sem hann stefnir áveðið að og uppfyllir. Hann er hreinn og beinn og kurteis í allri framkomu við starfsfólk og nemendur skólans.
Í félagsstarfi innan skólans og einnig utan hans er hann leiðtogi sem er fylgt vegna þess hversu eðlilega og óhikað hann leiðbeinir og aðstoðar og stendur með lítilmagnanum.
Á þennan hátt hefur hann eflt bekkjaranda 10. bekkjar og auðgað skólaanda Klébergsskóla.
|