| Skólaslit |
|
|
|
| mánudagur, 07 júní 2010 11:55 |
|
Ágætu nemendur Klébergsskóla og foreldrar/forráðamenn þeirra. Fimmtudaginn 10. júní verður Klébergsskóla slitið í 81. sinn. Athöfnin hefst kl. 16:30 að viðstöddum öllum nemendum skólans og þeim foreldrum sem sjá sér fært að koma.
Á dagskránni eru tónlistaratriði, ávörp og útskrift 10. bekkinga. Að henni lokinni fara nemendur 1.-9. bekkja með umsjónarkennurum í stofur sínar, taka við vitnisburði og ljúka þannig skólaárinu.
10. bekkingar og forráðamenn þeirra verða hins vegar áfram í salnum í kveðjukaffi 10. bekkjar.
Skólaakstur verður ekki þennan dag.
Skólastjóri
|


