Nýjar og nýlegar myndir Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
laugardagur, 05 júní 2010 16:51


Smellið á myndina til að stækka.

Það er búið að vera mjög gaman í Klébergsskóla undanfarna daga. Bekkirnir hafa farið í vorferðir og 10. bekkurinn í útskriftarferðina. Þá voru þemadagar með vináttuna sem aðalþema í fjölbreytilegum verkefnum og loks héldum við íþróttadaginn sl. föstudag. Að loknum stuttum og skemmtilegum íþrótta- og leikjastöðvum enduðum við á hinu margfræga reiptogi milli 10. bekkjar og starfsmanna.  Myndir af þessu eru nú komnar í Myndasafnið. Höfundar myndanna eru ýmsir starfsmenn skólans en Hrefna Sigríður, foreldri í 10. bekk tók myndirnar úr útskriftarferðinni. Nýju myndirnar eru í möppunum "Ferðalög" og "Þemadagar".