Opinn íbúafundur kl. 17 á miðvikudaginn Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
þriðjudagur, 26 janúar 2010 12:12

Opinn íbúafundur um menntamál og íþrótta- og tómstundamál á Kjalarnesi verður haldinn í Klébergsskóla, miðvikudaginn 27. janúar kl. 17:00.  
Fjallað verður um skólahald, íþróttir og tómstundamál og farið yfir stöðuna í uppbyggingu skóla- og íþróttamannvirkja í hverfinu. Þá verður kynnt vinna við mótun nýrrar menntastefnu á vegum Reykjavíkurborgar. Að loknu inngangserindi verða umræður með þátttöku íbúa, fulltrúa foreldra- og íþróttafélaga, Menntasviðs og Íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkurborgar.

Frummælandi: Kjartan Magnússon, formaður menntaráðs og íþrótta- og tómstundaráðs.
Fundarstjóri: Sigríður Pétursdóttir, fulltrúi í menntaráði


Skólastjóri f.h. Íþrótta- og tómstundaráðs og Menntaráðs.