Íþróttasamband lögreglumanna Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
miðvikudagur, 20 janúar 2010 23:15

Í dag fengu nemendur í 1. bekk bækling frá Íþróttasambandi lögreglumanna sem nefnist Í umferðinni. Þessi bæklingur er fullur af fróðleik um það hvernig eigi að haga sér á leið í skólann hvort sem maður kemur í bíl, rútu, á reiðhjóli eða gangandi. Þetta er fræðandi bæklingur sem allir foreldrar ættu að lesa með börnum sínum.