|
föstudagur, 18 júní 2010 09:13 |
|
Nú er Klébergsskóli kominn í sumarfrí og skrifstofa skólans því lokuð. Opnað verður eftir sumarfrí 10. ágúst nk. kl. 9.
|
|
|
Klébergsskóla slitið í 81. sinn |
|
|
|
|
mánudagur, 21 júní 2010 12:34 |
|
.jpg)
Smellið á myndina:)
Klébergsskóla var slitið í 81. sinn 10. júní sl. Það þýðir að skólinn er elsti starfandi grunnskóli í Reykjavík. Skólaslit og útskrift 10. bekkjar fóru fram við hátíðlega athöfn í sal skólans, að viðstöddum öllum nemendum og starfsmönnum skólans auk foreldra og forráðamanna. Snorri Hauksson aðstoðarskólastjóri var kynnir. Kór skólans söng fjögur lög undir stjórn Ásrúnar Ingu Kondrup og Stefán Valgeir Guðjónsson lék lag á rafmagnsgítar. Þá flutti skólastjóri ávarp þar sem farið var yfir skólastarfið á skólaárinu 2009-2010.
|
|
Lesa meira...
|
|
mánudagur, 14 júní 2010 21:24 |
|
Klébergsskóla var slitið í 81. sinn við hátíðlega athöfn þann 10. júní sl. Myndir og frásagnir af skólaslitunum og sérstaklega útskrift 10. bekkjar verða birtar hér hið fyrsta en til að byrja með kemur þessi mynd af árgangi 1994.
Til hamingju með áfangann!

|
|
Ályktun skólaráðs Klébergsskóla |
|
|
|
|
mánudagur, 14 júní 2010 21:35 |
|
Skólaráð Klébergsskóla samþykkti í apríl sl. svohljóðandi ályktun:
Ályktun Skólaráðs Klébergsskóla
Í upphafi yfirstandandi skólaárs voru boðaðar hagræðingaraðgerðir í grunnskólum borgarinnar. Viðbótarstundir í yngri bekkjum voru teknar af, stundum til forfallakennslu var fækkað, stórlega var dregið úr endurnýjun búnaðar og framkvæmdir skornar niður svo dæmi séu nefnd.
Fyrir þennan niðurskurð bjó Klébergsskóli við töluverðan aðstöðumun vegna staðsetningar sinnar miðað við aðra grunnskóla í Reykjavík. Þetta hefur gert það að verkum að nemendum skólans býðst ekki að fara í vettvangsferðir í sama mæli og jafnaldrar þeirra í öðrum skólum borgarinnar, ástæðan er einfaldlega kostnaður við ferðir. Undanfarin ár hafa stjórnendur skólans ítrekað reynt að fá þetta leiðrétt án árangurs. Þjónusta Strætó kemur hér lítt að gagni vegna lítillar ferðatíðni til og frá Kjalarnesi. |
|
Lesa meira...
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 3 af 40 |