Komandi viðburðir


Engir viðburðir eru skráðir á næstunni.
Skoða dagatalið
September 2010 Október 2010
Su Þr Mi Fi La
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30
Myndir frá árshátíð yngri bekkja Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
þriðjudagur, 20 apríl 2010 20:22

Nýjar myndir frá árshátíð yngri bekkja má nú skoða hér á vefnum. Sjá Myndasafn.

 
Árshátíð 1.-7. bekkjar Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
sunnudagur, 18 apríl 2010 22:48

Þriðjudaginn 20. aprílverður árshátíð 1.-7. bekkjar haldin í sal Klébergsskóla. Hún hefst kl. 18:00 og stendur til u.þ.b. 19:30.

Dagskráin samanstendur af skemmtiatriðum frá bekkjunum og sjá nemendur einnig um kynningu. Aðgangseyrir er 500 kr. á mann, þó borgar hver fjölskylda, börn og forráðamenn þeirra, aldrei meira en 1.500 kr. Að loknum skemmtiatriðum verða kaffiveitingar. Sú hefð hefur skapast að foreldrar í 5.-7. bekk komi með meðlæti með kaffinu og förum við þess á leit við foreldra í þeim bekkjum að svo verði aftur í ár. Innkoman af þessari árshátíð rennur svo óskipt í ferðasjóð núverandi 6. bekkjar og nýtist þeim í ferð þeirra í Skólabúðirnar á Reykjum næsta haust.

Að lokum: skólabíllinn verður ekki í sérferðum vegna árshátíðarinnar.

 
Leiðbeiningar til foreldra um viðbrögð við óveðri og öskufalli Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
sunnudagur, 18 apríl 2010 22:12

Hér fyrir neðan er viðhengi með leiðbeiningum frá Menntasviði Reykjavíkur til foreldra um viðbrögð þegar óveður eða öskufall veldur röskun á skólastarfi. Tilefnið nú er mögulegt öskufall í Reykjavík vegna eldgoss í Eyjafjallajökli.
Ákveðið hefur verið að fara eftir áætlun um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs ef þannig fer að það verður öskufall í Reykjavík vegna eldgossins í Eyjafjallajökli og Almannavarnir meta ástandið þannig að þörf sé á viðbrögðum.

Leiðbeiningar

 
Barnamenningarhátíð Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
þriðjudagur, 13 apríl 2010 23:58

Barnamenningarhátíðin er í næstu viku og mun 4. bekkur taka þátt í opnunarskrúðgöngu á hátíðinni. Það verður fjölbreytt dagskrá hérna á Kjalarnesi í tengslum við þessa hátíð. Á þriðjudeginum verðu árshátíð 1.-7. bekkjar, á miðvikudeginum verður atriði frá Kátakoti og á föstudeginum er umhverfisdagurinn, Einnig verður leikskólinn með skemmtun svo að það verður margt áhugavert í boði.

Hægt er að skoða dagskrá hátíðarinnar á www. barnamenningarhatid.is

 

 

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 8 af 40