|
|
|
mánudagur, 07 júní 2010 11:55 |
|
Ágætu nemendur Klébergsskóla og foreldrar/forráðamenn þeirra.
Fimmtudaginn 10. júní verður Klébergsskóla slitið í 81. sinn. Athöfnin hefst kl. 16:30 að viðstöddum öllum nemendum skólans og þeim foreldrum sem sjá sér fært að koma.
Á dagskránni eru tónlistaratriði, ávörp og útskrift 10. bekkinga. Að henni lokinni fara nemendur 1.-9. bekkja með umsjónarkennurum í stofur sínar, taka við vitnisburði og ljúka þannig skólaárinu.
10. bekkingar og forráðamenn þeirra verða hins vegar áfram í salnum í kveðjukaffi 10. bekkjar.
Skólaakstur verður ekki þennan dag.
Skólastjóri |
|
laugardagur, 05 júní 2010 16:51 |
|

Smellið á myndina til að stækka.
Það er búið að vera mjög gaman í Klébergsskóla undanfarna daga. Bekkirnir hafa farið í vorferðir og 10. bekkurinn í útskriftarferðina. Þá voru þemadagar með vináttuna sem aðalþema í fjölbreytilegum verkefnum og loks héldum við íþróttadaginn sl. föstudag. Að loknum stuttum og skemmtilegum íþrótta- og leikjastöðvum enduðum við á hinu margfræga reiptogi milli 10. bekkjar og starfsmanna. Myndir af þessu eru nú komnar í Myndasafnið. Höfundar myndanna eru ýmsir starfsmenn skólans en Hrefna Sigríður, foreldri í 10. bekk tók myndirnar úr útskriftarferðinni. Nýju myndirnar eru í möppunum "Ferðalög" og "Þemadagar". |
|
miðvikudagur, 26 maí 2010 21:04 |
|
Skólaárinu fer nú senn að ljúka og eins og hefð er fyrir brjótum við upp starfið síðustu dagana. Bekkirnir fara í vorferðir sínar ýmist á mánudag eða þriðjudag á meðan 10. bekkurinn verður í útskriftarferðalagi dagana 31. maí til 2. júní. Á miðvikudag og fimmtudag verða þemadagar í skólanum undir yfirskriftinni “vinátta”. Þar verður öllum nemendum raðað í blandaða hópa þvert á árganga og hóparnir vinna svo á stöðvum, 80 mínútur í senn. Viðfangsefni stöðvanna eru mörg og mismunandi, allt frá útivist til myndlistar. Það stefnir í mjög fjölbreytta og skemmtilega þemadaga. Föstudaginn 4. júní er svo íþróttadagur sem hefð er orðin fyrir. |
|
Lesa meira...
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 4 af 40 |